hotshot....mmmmmmm
HAHAHAHAHA.....
Grrrrrrrrr........
það vantaði sko ekki fjörið!
móðir í hjáverkum
| en þessi er nokkuð góður....(fyrir okkur gamla fólkið;o) Sjúkket maður, ég er orðin 30 ára. Fólk eldra en 30 ætti að vera dáið! (eða vorum við bara heppin?) Ég var að spjalla um daginn við vin minn um þá "gömlu góðu daga" og við komumst að því að fólk sem er eldra en 30 ára ætti í raun að vera dáið. Já, samkvæmt löggjöfum og skriffinnum nútímans ættu þau okkar sem voru börn á 5., 6., 7. og fyrrihluta 8. áratuga síðustu aldar ekki að hafa lifað af. HVERS VEGNA VAR ÞESSI NIÐURSTAÐA OKKAR SVONA? - Jú, barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu. - Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum og þegar við hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm. - Sem börn sátum við í bílum án öryggisbeltis >og/eða púða. Að fá far á vörubílspalli eða "teika" var sérlega gaman. - Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar voru of feit, því við vorum alltaf úti að leika, við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni án þess að nokkur létist. -Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum á honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið. -Við forum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og komum aftur heim í kvöldmat Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir daginn. -Engir farsímar. Ha, engir farsímar? Óhugsandi! Sumir áttu litlar talstöðvar sem var flott að eiga! -Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X-box, enga tölvuleiki, ekki fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gervihnattasjónvarp, ekki heimabíó, farsíma, heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu. -Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá. -Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að kenna neinum um nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi? -Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það. -Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli og átum Maðka og reyktum njóla. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar og margir gáfust upp á fyrsta njólanum! -Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og létum eins og heima hjá okkur. -Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu, eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa. Svo þegar aldurinn sagði til sín fórum við í kossaleik og eignuðumst kærustu/kærasta. -Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur - Við stjórnuðum okkur sjálf. -Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk. Hræðilegt.... En þeir lifðu af. -Engin vissi hvað Rídalín var og engin bruddi pillur sem barn. -Það var farið í þrjúbíó á sunnudögum með popp með sér og kakó á Lybbís-flösku, og Andrés Önd var á dönsku, sem hefur hjálpað mörgum námsmanninum í að fóta sig í norðurlandamálunum seinna meir. -Við fórum í sunnudagsskóla eða sóttum KFUM og K, sungum og vorum í Skátunum og lærðum hnúta og kurteisi.! -Ef það sprakk á hjólinu lagfærðum við það í sameiningu og alveg sjálf. -Morgunkornið okkar var m.a. TRIX morgunkorn, og við lifðum af litarefnið í því... OG AFLEIÐINGIN ER ÞESSI! Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda. Við áttum frelsi, sigra ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt saman. Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og reglur um líf okkar sem þeir segja að sé okkur sjálfum fyrir bestu?. Þessi kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, er lunkið að leysa vandamál og bestu fjárfestar nokkru sinni. Við áttum bara gott líf er það ekki? |
| ...í aldana skaut, og það alldeilis ár! Bætti ekki einu heldur tveimur börnum í heiminn. Tel það til afreka minna! Gerði dauða leit að rauðum spariskóm, og ætla að gera það að mínu mission-i að finna þá á árinu sem var að ganga í garð:o) Hef ákveðið að reyna ekki við að eiga íslending nr 300.000, tel 3 börn vera nóg.......í bili;o) Kannski að Bjössi og Hanna komist nærri því markmiði, eða jafnvel eignist íslending nr. 300.000. Dáldið spennó. Stelpur mínar (hittingsstelpurnar góðu!) Þar sem var svo agalega gaman hjá okkur þann 29. des (eins og alltaf) þá sting ég upp á að í 4 -5 laugardagshittingi þá færum við hann á kvölddagskrá, hittumst, punntum okkur, klæðum okkur í okkar fínasta (eða bara e-ð fínt) og fáum okkur hvítvín, eða/og eldum kannski saman.....hvað segiði um það, veit að það eru nokkrir nokkuð góðir kokkar í hópnum..... Verð semsagt 30 og eitthvað á þessu ári. Það er e-ð við það að verða 30. Allavega hjá öllum sem ég þekki, það líta allir svo vel út og aldurinn (sem er nú ekki beint hár, enn...) fer fólki vel. Þannig að þetta er bara spennandi. Var að lesa á blogginu hennar Helgu um nágranna-karmað, úff ekki mjög spennandi. Einu sinni lennti ég í svona leiðinlegri lífsreynslu þá á Vitastígnum. Var semsagt ein heima, með Dag lítinn. Byrjar e-r að hamast á hurðinni niðri sem var alls ekki mjög traust. Sem betur fer var nágranni minn og rómantíker hann Bragi Guðmunds (á Bylgjunni!) heima og stoppaði þessa rugluðu og blindfullu konu sem var allveg viss um að hún ætti íbúðina okkar. Veit ekki hvað ég hefði gert ef hún hefði komist í íbúðina "sína". hehe, hægt að hlæja smá að þessu núna en mér var sko alls ekki skemmt þegar hún var niðri í stigagangi.... En elsku þið fáu hræður sem lesa þetta blaður mitt, gleðilegt nýtt ár og megi það nýja vera ykkur gott og gæfuríkt. Takk fyrir gamlar og góðar stundir, kveðja Ösp |
| jú fór í bæinn með tveimur traustum álitsgjöfum og skellti mér á eitt stykki pallíettu-blúndu rokk kjól! Og skó í stíl!! OMG hvað ég verð rosalega fín, hlakka rosa til að fara í kjólinn fyrir jólin:o) Mamma ákvað semsagt að gefa mér helmingin í kjólnum þessi elska (hann kostaði nebblega nokkra þúsundkallana) Held að þetta sé allt Erlu perlu minni að kenna, hún gaf mér eitt stykki pallíettubelti, og núna er ég búin að kaupa pallíettukjól dauðans!! .....en bara gaman að því. Nú eru semsagt mín helstu vandræði fyrir jólin að finna e-ð spennandi handa barnsföður mínum......höfuðverkur....langar ekki bara að kaupa e-ð (Hildur hvað segirðu!!þú ert svo úrræðagóð;o) Vona innilega að Halldór verði búin snemma á þorláksmessu, langar nebblega rosamikið í gönguferð í bænum, það er svo jóló..... jæja kveð í bili með gleði í hjarta og spennu í maga..... |

| jæja ágætu lesendur nær og fjær, ég fór semsagt í bæinn í gær það sem ég hafði fengið ábendingu frá henni Hildi um rauða skó í Rokk og Rósum. Sá eina mjög sæta en hefði ekki treyst mér að labba á þeim fleiri en 2 skref ef ég hefði náð því, slíkur var pinnahællinn. En auðvitað álpaðist ég inn í kjólaskotið og þar eru sko margir skemmtilega glamúr kjólar og auðvitað fann ég einn slíkan sem var eins og sniðin á mig úr blúndum og pallíettum!!! Hljómar vel ekki satt. Þannig að núna er ég að spá í kjól fyrir jólin í staðin fyrir ófáanlegu rauðu spariskónna, þeir bíða betri tíma.....en best að skella sér í bæinn og máta aftur áður en endanleg ákvörðun verður tekin....... Sem ég held að verði kaupa, kaupa, kaupa!!! |

| já mér LANGAR í rauða spariskó. Það er mynd af hinum fullkomnu rauðu spariskóm í huga mínum sem vill ekki fara. Þannig að ég fór og hóf leitina miklu. Var sko allveg til í að láta aðeins undan kröfunum, þeir mættu vera pínu öðruvísi en draumaskórnir.....en nei það eru ekki til rauðir skór á 'Islandi!! 'Eg er semsagt búin að fara í KringlunaSmáralindinaLaugarveginn......og púhúhú það hafa engir skór fundist í fallegum rauðum lit, ekki einu sinni í ljótum rauðum lit...þannig að nú auglýsi ég eftir RAUÐUM spariskóm, ef þið sjáið RAUÐA spariskó, látiði mig endilega vita!! Það styttist í jólin og rjúpurnar komnar í hús!! 'IHA :o) Já vinur hans Geira er svo góðhjartaður að hann lætur fjölskylduna rjúpusjúku fá 12 stykki af guðdómlegum rjúpum á ekki neitt!! Þvílík góðmenska. Annan en rjúpurnar sem mér buðust á 3000 kr stk, já ég endurtek 3000 stykkið! Er fólk ekki allveg allt í lagi?? 'Eg held bara ekki..... 'Otrúlega skondið með sokkabuxur á stráka. Það er í fyrsta lagi ekki auðvelt að finna þær í búðum, náttúrulega endalaust af bleikum og rauðum eins og bara stelpur séu í sokkabuxum. Svo rakst ég á 3 pör saman á 999 kr sem er mjög gott verð, og í þokkabót voru þær bara ansi smekklegar og góðar. 'Eg semsagt keypti síðasta pakkan á reykjavíkursvæðinu! Fullt til af bleiku sokkabuxunum, en bláu og grænu, uppseldar í öllum rúmfatalagersbúðunum!! 'Eg held bara að fleiri strákamömmur hafi uppgvötvað þær........... Búin að setja jólaseríur í gluggana í stofunni, og nenni ekki að gera meir, hvað er að jólastelpan e-ð að klikka.......jæja best að skella sér bara í þetta af hörku, koma svo...... þangað til næst, kveðja Ösp rauðuskósjúka |
Já fór semsagt í Kringluna og Smáralindina í dag með Dóra og geðveikin er byrjuð, það voru semsagt ALLIR í Kringlunni og þeir sem ekki voru þar, ekki margir en nógu margir til að fylla Smáralindina voru þar! 'Uff, mikið er ég fegin að vera heima í orlofi og haft möguleika á að fara á mánudagsmorgni kl 10:00 og verslað jólagjafir. Sem er reyndar mjög ólíklegt þar sem ég vakna oftast nær 11;O)....
Litlu peyjarnir eru farnir að sýna takta um mannafælni og eru sko ekki til í að vera hjá hverjum sem er, ekki einu sinni aðalpassaranum henni ömmu 'Aslaugu, og ekki lýst mér nú vel á það!
Var að velta því fyrir mér hvort það sé ekki öruggt mál að kaupmenn hér í bæ smyrji svolitlu auka verði á vörurnar sínar svona í tilefni jólanna....allavega blöskrar manni hvað litlir og ómerkilegir hlutir geta kostað mikið....
Amman kom í hús í dag, sendi forleldrana út (sem enduðu í Kringlunni og Smáralindinni) bakaði piparkökur með Degi Sölva með einni og passaði vælukjóana (ljótt af mér að segja svona!!) með hinni, semsagt súperamma:o)
Hvað er málið með fólk í Hollywood, nú er semsagt Brad að fara að ættleiða börnin hennar Angelíu....hvað er korter síðan hann skildi.... mikið vona ég barnana vegna að þau verði þá ekki hætt saman eftir korter.....
Og samhvæmt E! (horfi stundum á þá merku sjónvarpsrás) er David Beckham The most sexiest men alive!! hvorki meira né minna og nú skil ég líka út af hverju Brad skildi við Jennifer og nældi í Jolie (eða var það öfugt) allavega þá er hún samhvæmt sama lista The most sexiest woman alive, en Jennifer bara númer 64, auðvitað varð hann að skipta, enda sjálfur nr 4 og þá þýðir ekki að láta sjá sig með e-m nr. 64.........
og á meðan að það er verið að murrka lífið úr Jesú í Passion of the Krist (hún er semsagt í sjónvarpinu) býð ég góða nótt og vona að þið finnið hin sanna jóla-anda innra með ykkur og trúið mér hann finnst ekki í Kringlunni.......hvað þá Smáralindinni.