22.2.08

Heyrði þetta í dag...

sjálfstæðisflokkurinn=Sjálfseiðingarflokkurinn.

Haha, á nokkuð vel við.

Villi Vill ætlar að halda áfram að sorast í borginni.


og einn sætur fyrir helgina...


og sjáiði hann á tvibba, allveg eins og ég, við erum í stíl!!

18.2.08

Ösp mælir með:


þúsund bjartar sólir

Gerir manni grein fyrir því hvað maður lifir vernduðu og góðu lífi
og hvað margir gera það ekki.

Sorglegt.

En annars er ég bara að telja niður vikur, 5 í Berlín og 7 í Köben góðu Köben:)

Hvað er annars málið með þessa dökkhærðu dömu í Dexter??!
Veit ekki allveg hvað mér á að finnast um hana?

Thoughts?

11.2.08

langt síðan ég setti inn

mynd af sexy guys

Hér er einn sem er að gera sig BIG time,

og svo drepur hann bara vondu kallana....






gerist ekki betra!

10.2.08

bara að láta ykkur vita...


að í dag eru 2 mánuðir í Kaupmannahafnarferð:)
Svoooo stutt síðan það voru 3;)
og svo er enþá styttra í Berlínarferð sem við skötuhjú ætlum í í tilefni að við höfum hangið saman í heil 10 ár!

Þannig að brjáluð byrjum á árinu, 2 utanlandsferðir og vonandi fleiri!


En þið sem fylgist með danska þættinum á sunn, hver haldiði að sé morðinginn?
þetta er ansi spennandi. Held bara að það eigi eftir að koma á óvart, hver það er.

Fór í fyrsta sinn um helgina í VIP salinn í Álfabakka. Mikið djö er það næs og fjúff hvað No Country for Old Men er svakaleg

fjúff fjúff!

eigum við að ræða þetta gashylkjadæmi? Ruglið

1.2.08

ég stefni hratt í að verða


Imelda Marcos kjólanna

Er allgjörlega kjólasjúk þessa daganna. Frá jólum er ég búin að kaupa mér 5 kjóla, sem ég tel ágætis árangur svona á rúmum mánuði.

Mæli með að þið fraukur skundið í Spútnik, kílóamarkaður, fékk 2 kjóla, eina tösku og eina húfu á 3500.- kjarakaup það!

Verst er að það er svo rólegt hjá manni í sosial-lífinu að maður hefur engin tækifæri til þess að klæðast herlegheitunum....

Auglýsi eftir partý-um!

22.1.08

21.1.08

Ég vinn á leikskóla

en ég vissi ekki að Borgarstjórn RVK væri í sandkassanum hjá mér!

Ætli mitt næsta verk í vinnunni verði að skeina Villa um bossann??

Þvílíkur skrípaleikur

17.1.08

jæja stelpur...

þið sem voruð að hvabba í mér yfir Köbenferðinni og að ég væri einhver svikari og e-ð, nú erum við, kjallinn og kjellingin að spá í vorferð...

Hvernig væri að ákveða tíma á okkar ferð svo maður verði ekki rassskelltur!

13.1.08

Skrítið

að fara í 25 ára afmæli "litla" bróður síns og sjá fullt af yngri útgáfum af krökkum sem maður þekkti í Mosó. Þarna voru þá samankomin yngri systkini gamalla félaga, sem voru líka svona allveg eins í útliti og eldri útgáfurnar. Strange.

en hér er afmælisbarnið, fann þessa mynd á Google undir leitarorðinu Geiri slææ

6.1.08

Köbenhavn here i come...

í apríl, það er staðfest. Bókaði miðann áðan, fer á fimmtudegi út og kem heim á sunnudegi. GAMAN

Frænkur þarna úti, gjöra svo vel að vera lausar og liðugar fyrir frænkukvöld laugardagdskvöldið 12 apríl!!

En já vildi bara monta mig:D

1.1.08

Gleðilegt nýtt ár!!

árið 2007 byrjaði ég aftur að vinna eftir langt og gott fæðingarorlof!
árið 2007 fór ég nokkrum sinnum til útlanda, Köben á árshátíð, New york með mínum heitelskaða og Finnlands með Degi Sölva og Heiðu! Verð að gera betur árið 2008, og byrjar það vel með miða uppá ferð til Köben!
árið 2007 sendi mig lengra inn í fertugsaldurinn. Já ekki verður maður yngri!

Heilt yfir allt hefur árið 2007 verið gott og skemmtilegt ár, hlakka ég til að hefja það nýja, 2008 með bros á vör,

um þetta leiti fyrir 10 árum kynntist ég þessum manni!

official day 8 feb. Dagurinn sem mér var hent út. Hehe

jæja elskur, óska öllum gleðilegt nýs árs og þakka gamalt og gott!

Skál

25.12.07

Ég og

fjölskyldan mín fína óskum dyggum lesendum síðunnar gleðilegra jóla!

Veriði dugleg að borða!!

18.12.07

stelpukvöld á Tapas

ég fór með fríðum hópi vinkvenna á Tapas á sunnudagskvöldið, borðaði frábæran mat og sötraði hvítvín með, ekki amarlegt það!

eins og þessar fjörugu myndir sýna:)















Takk fyrir frábært kvöld stelpur!

9.12.07

Elfyourself

eigum við eitthvað að ræða það að Næturvaktin sé búin...snökkt...

Hvað nú??

en eigum við eitthvað að ræða hvað þetta er fyndið? Jesús

1.12.07

Tina Turner...

í kariokie-blasti kl 06:27

ekki góð hugmynd

Það var semsagt partý hjá nágrannanum og þrátt fyrir tvær hæðir á milli okkar var eins og Tina sjálf stæði í svefnherberginu mínu.

Ætli hún sé að hefna sín?

Annars er ég að fara í jólamat Lindarborgar í kvöld, allir sem ætla að vera í bænum í kvöld, vinsamlegast hafið samband. Annars held ég að ég verði komin heim um 21...
og það er ekki gaman