| Já góðir lesendur, ég vona svo sannarlega að þið hafið ekki misst af ungfrú 'Island í gær, þvílík snilld. Þessar aumingja stúlkur sem voru þarna að dilla sér frekar ekki í takt á hræðilega ljótu og eightís sviði sem minnti á á tali hjá Hemma Gunn. Næst best fannst mér þegar þær stigu á stokk í bikiní með hvítar slæður yfir rassinn, hvað var það? En ekkert toppaði það þegar Miss World, ungfrú Unnur Birna, hélt lofræðu um sjálfan sig og hennar ótrúlega árangur á sviði fegurðar, og svo steig hún af sviðinu og kassbúmmmm!! fleytti kjellingar á gólfinu, kórónan, demantskreytta skall í gólfið....úff kjánahrollur dauðans og hláturskast í kjölfarið, ég er enn að flissa þegar ég skrifa þetta....ojjj hvað ég er vond, en þetta var bara einstaklega fyndið, shit án efa T.V moment ársins... |
25.5.06
T.V. moment ársins!...
22.5.06
fyrirfram afmæliskveðja
| Þeir eiga afmæli í dag.. þeir eiga afmæli í dag.. þeir eiga afmæli, flottustu tvíburarnir í heimi! þeir eiga afmæli í dag... engin hlutdægni hér á bæ;o) verð upptekin á morgun þannig að afmæliskveðjan fer inn einum degi fyrir ammæli |
18.5.06
Jæja jæja.....
þá þá...
best að halda þessu blessaða bloggi gangandi fyrir Hjördísi og Kollu....
Þær verða nú að hafa eitthvað skemmtilegt að kíkja á á netinu!
'Uff, hún Silvía Night okkar bara púuð niður! Frekar fyndið samt, en leiðinlegt að falla úr keppni í 1000 skipti...
Mér fannst golden shower djókið dáldið fyndið...HAHA hún varð náttúrulega að hneiksla á einhvern hátt
Jebbsurí og dúddurei...gott að ég er að fara í brúðkaup á laugardaginn, þannig að ég þarf ekki að sitja með tárin fyrir framan eurovision og kjósa Lordí, or what the fu$%&$ þeir hétu, fallegu skrímslin sem hefðu sómað sér vel í Lord of the ring seríunni, the final battel...
Já og jæja svo er maður bara að fara að halda upp á eins árs afmæli og svona, brjálað að gera
until later aligaters
after while crockodile
12.5.06
8.5.06
sumarið er tíminn...

| úff, mikið er yndislegt að fá sólina, hlýjuna, og allt sem fylgir því að sumarið er að koma/komið! Reyndar er ég ekki allveg að fíla bíflugurnar, þessar sem stinga.... en vonandi eiga þær bara ekki eftir að þvælast mikið fyrir mér....í sumar Vá hvað ég hlakka mikið til þess að njóta sumarsins, með börnunum mínum...þetta byrjar vel, sól um sumarylur, litlar tær á grasi í fyrsta sinn...æði læt fylgja með þessu sumarlega bloggi mynd af sætustu tvíburunum að stripplast... Takiði eftir því hvað Brynjar Jökull er að gera.....! Sól, sól skín á mig ský, ský burt með þig. Sendi öllum þeim sem eiga við sárt að binda (þ.e.a.s. þurfa að vera INNI að læra) alla mína samúð....allveg satt;o) |
3.5.06
aftur til fortíðar...
fyrir tæpu ári síðan var ég ólétt, af tvíburum, var að hætta að vinna, og átti rúma 2 mánuði eftir af meðgöngunni.
Mikið rosalega var gott að hætta að vinna, ég var allveg búin með alla orku og aðeins meira en það.
'Eg fékk að setja lappirnar upp í loft og taka lífinu með ró í 2 vikur....
Þá fékk ég verki
'Eg hringdi upp á spítala og fór uppeftir
Konan sem tók á móti mér talaði við mig eins og ég væri ekki allveg í lagi....
ertu ekki bara með þrýsting...ég var með hríðar....hún sagði ertu ekki bara með þrýsting og brosti þjálfaða ljósmæðrabrosinu sínu og hugsaði enn ein með móðursýki
Sendi mig heim.
'Eg svaf illa
Og verkirnir urðu verri, og ég taldi mér trú um að þetta væri nú ekkert...
Skellti mér af stað og verslaði vagn.....með hríðar
Kom til ljósmóðurinnar minnar rétt fyrir 2, átti tíma kl 2 og beið út í bíl....á meðan ég fann spörk lengst niðrí....
Spjallaði við hana og hún lét lækni kíkja á mig, sem fann fyrir fæti bunga niður....
Sjúkrabíll
Sterasprauta
Hríðarstillandi
Dóri fór að fá sér að borða, og hjartslátturinn á tvíbura b fór að taka dýfur
Keisari ákveðinn um átta, ég hringdi í Dóra sem hennti heilum nonnabita i ruslið
'Eg var stunginn í bakið, oft, gékk eitthvað illa að setja inn hrossanálina, mæli ekki með mænudeifingu...(þoli ekki þegar óléttar konur segja: æ vona að ég geti farið í keisara...þori ekki að fæða það er svo vont...)
Dóri kom inn, allt í blóði, og svo var skorið, ég missti ca 1 og 1/2 Líter af blóði áður en legið var opnað....
Svo var tvíburi A rifinn út og hann gétt eins og lítill kettlingur, og ég grét, einni mínútu síðar var tvíburi B fæddur, minnir að hann hafi ekki grátið
'Eg fékk að sjá þá og hugsaði þegar ég sá Viktor, afi Nonni
Svo fékk ég skjálftan, hríðskalf á skurðarborðinu á meðan vökudeidarlæknarnir sáu um börnin mín...
í kassa...
'Eg fékk að sjá þá ca 3 tímum seinna, þá var rúminu mínu rúllað inn á vöku og þarna voru þeir..
pínkulitlir, og sætastir, annar í öndunarvél og hinn ekki, allgjörar hetjur, sem áttu heima í 6 vikur á vöku, úff....mjaltarvélin, vona að ég þurfi aldrei aftur að nota það tæki aftur...en notaði hana samt í 2 mánuði, á 3 tíma fresti...nema á nóttunni þá svaf ég í 6 tíma og vaknaði...oft með stíflur í brjóstunum...það var vont
og nú er árið að líða, afmælisveilsa framundan hjá litlu prinsunum sem elska cherioos og epli, sem elska að fara í bað og busla, sem elska að klína sér á mömmu sína, sem geta orðið ótrúlega frekir, held að Brynjar hafi fengið vinnu-skapið hans Dóra...
afsakið stafsetningavillur, nenni ekki að lesa yfir þetta...vona að þetta sé ekki of þungur pistill...en svona var þetta bara
kveð að sinni, í bili og allt það ætla að fara í kapal í nýja símanum mínum....segi brandara næst...lofa
30.4.06
sumargjöf.....

já kallinum fannst ég þurfa á smá síma "makeover" að halda og færði mér þennan líka fína pæjusíma á föstudaginn. Liggaliggalái.................... Annars fór ég aftur á hryllingsmynd eða meira svona spennumynd á föstudaginn, er að breytast í gelgju? En las dóma um myndina og get verið nokkuð sammála, en þar var henni líkt við langdregið byrjunaratriðið í Scream..... Mæli allavega frekar með hinum hryllingnum sem ég sá.....ef það er hægt að mæla með hrylling? já og svo er bara ekkert merkilegt að frétta af mér og mínum...... þannig að ég ætla bara að fara og fá mér vatn...............í glas.......... |
26.4.06
vatn....allra meina bót
| jæja ætla að senda hryllingin niður og skrifa aðeins um vatn.... spennandi..... Er semsagt búin að vera rosa dugleg, eftir kl 20, er það bara gamla misgóða vtnið sem fer inn fyrir mínar varir og svo tannkrem jú, alltaf gott að bursta tennurnar til að losna við nartlöngunina. Það er ótrúlegt hvað maður finnur fljótt mun á því að drekka vatn, mér líður eins og ég sé á einhvern hátt að hreinsa líkaman....... ætla nú samt ekki að breyta þessu bloggi í viðhalds blogg.... það er svo leiðinlegt.... enþá eru þröngu buxurnar of þröngar......en þetta er allt að koma........ |
23.4.06
hryllingur....
já borgaði heilar 800 kr. til að láta hræða úr mér viðkvæma líftóruna og hanga meirihluta myndarinnar á bak við peysuna mína......jú þessi já svo rosalega mynd heitir the hills have eyes og er til sýnis í Regnboganum. Hvers vegna fór ég og sat undir þessum hrylling er kannski ekki allveg á tæru. Allavega þá ætlaði ég á Walk the line, en þegar í bíóhúsið var komið (eftir kappaksturskeyrslu úr Kópavogi út á Reynimel þar sem bíópartnerinn var sóttur og svo niður í bæ) sagði miðastúlkan okkur að því miður hefði myndin verið vitlaust auglýst. Verð að taka það fram að það var verið að sýna Ice age 2 kl 22, en ekki Walk the line......er ekki allveg að skilja.
En svo við snúum okkur aftur að hryllningnum, þá hafði þessi b-splatter mynd þau áhrif á mig (fyrir utan martraðir um nóttina) að ég fór að hugsa þvílíkur viðbjóður kjarnorka er. Hún semsagt snérist að vissu leiti um það, þess vegna langar mig að láta þennan link fylgja með ef einhver vill sjá hverjar afleiðingarnar urðu fyrir þessa einstaklinga sem eru á síðunni en hún heitir nuclear nightmares -twenty years since chernobyl http://www.pixelpress.org/chernobyl/
Já það er ekki allt dans á rósum, og gleði og glaumur........
því miður........
21.4.06
rukkun.....
11.4.06
þetta er snilld.....
Veldu mánuðinn sem þú fæddist-Janúar- Ég drapFebrúar- Ég slóMars- Ég svaf hjá
Apríl- Ég horfði áMaí- Ég fróaði mér meðJúní- Ég slefaði áJulí-Ég hló aðÁgúst- Ég stakkSeptember- Ég skautOktóber- Ég naut ásta meðNóvember- Ég handtókDesember-Ég kúkaði áVeldu núna afmælisdaginn þinn-1. Hóru2. Kærasta/una þína3. Konu með HIV4. Kynæsandi Dverg5. Jólasvein6. Playboykanínu7. Giftri móðir8. Kennara9. Mömmu þína10. Páskahérann11. Köttinn12. Djöflinum13. Asískum skiptinema14. Jónsa í svörtum fötum15. Grjót16. Hund17. Klámstjörnu18. Þvagprufu19. Pung20. Húsið þitt21. Svín22. Lampa23. Kúk24. Davíð Oddson25. 50 cent26. Kynskipting27. Yddara28. Birgittu Haukdal29. Bjór30. Tappatogara31. StólpípuVeldu Þriðja stafinn í föðurnafninu þínu -A- Af því að ég elska súkkulaðiB- Af því að mér leiddistC- Af því að buxurnar mínar voru of þröngarD- Af því að þarf alltaf að prumpaE- Af því að hjartað mitt er tveim nr of lítiðF- Af því að ég fékk engar gjafir um jólinG- Af því mér finnst egg góðH- Af því að ég er á sýruI- Af því ég misteig migJ- Af því ég er með vörtuK- Af því mér líkar CheerL- Af því að ég var skökk/skakkurM- Af því ég var full/urN- Af því að mamma sagði mér að gera þaðO- Af því ég er hýrP- Af því ér er einmannaQ- Af því mamma og pabbi eru alltaf að rífastR- Af því að ég er gröð/graðurS- Af því mig langar að deyjaT- Af því ég hata skólaU- Af því ég þarf að fróa mérV- Af því að ég elska náttfata partyW- Af því að það róar migX- Af því að ég elska marmelaðiY- Af því að ég elska prump
Ö- Af því ég er að safna rassahárumsetjiði svo ykkar niðurstöðu í comments!'Eg hló af því að tappatogara af því að mamma sagði mér að gera það....
9.4.06
5.4.06
Fór í göngu í gær
| ég er semsagt skráð í gönguhóp sem hittist einu sinni í viku, og labbar saman í ca. klt. 'Eg ákvað að skella mér núna (í fyrsta skipti) þar sem það átti að hittast í næsta húsi við mig, eða Digraneskirkju. 'Eg átti von á léttu rölti og spjalli.....en NEI þetta var sko kraftanga dauðans, við vorum 4, og tvær sem mæta alltaf stungu okkur af....við vorum hálf hlaupandi á eftir þeim. 'O men......en mikið ans%&&%(=& er gott að hreyfa sig;o) Annars er ég bara í rólegheitunum, með tvo litla kúta til að kúra með á morgnana (NÆS) og svo baka ég bara þegar þeir sofa......og brenni kökurnar en það er önnur saga..... |
29.3.06
hugrenning dagsins....
| fór að velta því fyrir mér um daginn, hvort þeir sem maður hefur misst geti fylgst með manni, handan móðunnar miklu? Mér var hugsað til hennar ömmu minnar sem ég var mjög mikið hjá þegar ég var lítil enda bjó hun í næsta húsi. Allt í einu fannst mér svo leiðinlegt að hún (og afi og amma Stenna) viti ekki að ég eigi núna 3 börn, í raun þeirra framhaldspersónur, hluti af þeim. Allavega vil ég trúa því að á einhvern hátt séu þau að fylgjast með okkur og viti hvað á daga okkar hefur drifið, er það ekki? Mér finnst það nokkuð notarleg tilhugsun.... Allavega vonast ég nú eftir því að geta allavega lesið minningargreinarnar mínar í mogganum.....þegar ég dey;o) Hér er magakveisan sem herjaði á tvíburana með fremur ekki skemmtilegum bleium á undanhaldi....sem betur fer En hvernig er þetta er ekki eitthvað að fara að ferast sem býður upp á skemmtilegt spjall og örlítið víntár í aðra tánna.....néi, ég bara spyr |






