ákvað að keyra fram hjá Smáranum áðan um 11 þar sem ég bý nú nánast með hann í garðinum. Ætlaði að athuga hvort ég gæti laumast inn og keypt eins og einn til tvo legókassa á hálfvirði...
Nei þarna var fólk að bera út hálfa verslunina í nokkrum innkaupakerrum, röð í kring um húsið, heilu famelíurnar að bíða með smábörn á arminum í von um að legóið mundi ekki klárast á fyrsta hálftímanum...
svo virðist vera að fleiri en ég geti ekki commentað á þetta glæsilega og skemmtilega blogg! Kolla getur ekki sett sín hnitmiðuðu og fyndnu comment sem mér og örugglega Hildi þykir mjög miður
Nú er maður svo sannarlega farin að finna fyrir skammdeginu, það er orðið dimmt á morgnana þegar maður þarf að druslast á fætur og drengirnir vilja bara kúra.
Get ekki sagt að mér sé farið að hlakka til þegar það er bjart í ca 2 tíma yfir daginn eða e-ð svoleiðs...