22.5.08

WE ARE THE BEST FOOTBALLTEAM IN THE WORLD




og svo erum við komin áfram í eurovision!!!!!!
Pallapartý!!!!!




Taumlaus gleði!!!!!

16.5.08

vá! Þetta er eitt það steiktasta



sem ég hef séð, maður á eiginlega ekki til orð.

Best að halda sig frá krakkinu!

12.5.08

er að elska þetta lag



Var á árshátíð Ísafoldarprenntsmiðju, svaka stuð. Snillingurinn Lísa gerði þetta við mig





Verst er að nú er ekki séns að ég máli mig aftur sjálf! Lísa ég verð fastagestur hjá þér!! Hahaha


og ekki má gleyma þessum elskum! WE ARE THE CHAMPIONS MY FRIENDS.... og svo er það meistaradeildin þann 21, rassskella þetta ógeð...

1.5.08

jæja...


þá er ég búin að ná mér úr lægðinni eftir að ferðirnar mínar 2 kláruðust og ekkert meir planað. Grát...

Bíð bara spennt eftir að einhver æstur vinur/vinir vilji fara að skipuleggja ferð, kannski yfir High Tea á Vox, hver veit?? Annars er nóg að gerast hjá mér næstu 3 helgar, gaman gaman. Opið hús á Lindarborg núna á laugardaginn og allir að sjálfsögðu velkomnir að skoða vinnustaðinn minn og mig með. Svo er High Tea hittingur þann 10 maí og í beinu framhaldi árshátíð Ísafoldarprentsmiðju, Lísa og Dísa vonandi tilbúnar að skvera dömuna??!!
Og svo er loksins komið að 30 afmæli á Hagamelnum, ekki leiðinlegt að fá svona nokkrar helgar i röð til að kíkja í gleði í sínu fína pússi enda verð ég að fara að nota e-ð að þessum blessuðu kjólum mínum sem ég er búin að vera að sanka að mér!!

En í annað, var að lesa Dýragarðsbörnin aftur, það vaknaði áhugi hjá mér að lesa hana efir að hafa verið í Berlín. Og við vorum semsagt bara in the middle, þar sem allt gerist í bókinni, verslunargatan fína sem hótelið okkar var við, var t.d. svokallaðia barnastrik þar sem heróínsjúkar stelpur á aldrinum 12-15 ára seldu sig fyrir skammtinum og skammt frá var svo Zoo lestarstöðin þar sem Cristiane F nældi sér í kúnna og sparautaði sig svo á klósettunum. Bók sem virkilega situr í manni og er ég búin að vera að googla aðeins. Er að velta því fyrir mér hvort maður eigi að eltast við að sjá myndina, einhver sem hefur séð hana??

Jæja úr eymdinni í gleðina, þið megið endilega koma með tillögu að bók fyrir mig að lesa, er í lestrarstuði!

14.4.08

Köööööben!!!


já komin heim úr allveg hreint út sagt frábæri ferð, hvar skal byrja??
Kom um hádegi á fimmtudeginum út, þá var stefnan tekin á að klára að shoppa á milli bjóra sem tókst bara nokkuð vel:) Borðuðum sushi, drukkum bjór og meiri bjór á meðan við biðum eftir að taka á móti Siggu en hún kom um kvöldið. Þegar við vorum búnar að taka á móti henni héldum við upp í íbúð þar sem var spjallað og sötrað hvítvín (2 flöskur takk fyrir) áður en we hit the sack. Motto ferðarinnar virtist vera að vakna snemma, hversu seint viðð fórum að sofa og það byrjaði með stæl á föstudagsmorgninum:)En það var bara allt í góðu, svo var kíkt í bæinn, búðir, bjóra og bjóra áður en við skutluðumst heim til að taka okkur til fyrir opnunina hennar Dísu skvísu. Mættum þar galvaskar dáðumst að málverkum og sötruðum hvítvín.

Eftir opnunina fórum við með hóp vina og kúnna Þórdísar út að borða á agalega smart stað þar sem gallerýeigandinn tók upp á að bjóða öllum upp á máltíðina, ekkert smá rausnarlegt það! Nóttin var ung og við ákváðum að taka eitt stutt stopp á einn drykk, sem endaði í nokkrum og MJÖG miklu stuði, við erum held ég allar enþá með harðsperrur í munnvikunum! Laugardagsmorguninn var að sjálfögðu tekin snemma, enda mottó ferðarinnar, nú var það Istegade og nágrenni skoðað, þar sem við enduðum á Solbakken í kökuboði og gátum dáðst að litlu frænkum okkar. En ekki var hægt að stoppa lengi þar sem frænkukvöld var planað kl 6 heima hjá Heiðu, Sigga og Harpa eru semsagt frænkur á ská, þar var mikið skrafað, mikið drukkið, mikið mikið meinti ég, hehe, sumir sem héldu að þeir væru í góðri æfingu voru svo ekki allveg að meika þetta. Tölum ekki meir um það! Skemmtilegt kvöld sem drógst langt fram eftir morgni. Að sjálfsögðu var vaknað snemma, farið í brunch með Þórdísi og rölt um bæinn.

Nú var að koma að heimferð, fyrst hjá Siggu þar sem hún skutlaðist til Helsinki og svo hjá mér (grát) þar sem ég, ekki beint skutlaðist en komst til Íslands, á aðeins minni garmi en á leiðinni út, um miðnætti. Geiri Slææ og Yrja pikkuðu hrúgaldið upp og skuttluðu mér heim að dyrum, ekki amarlegt að fá svona þjónustu.

Eins og komið hefur fram var mikil ánægja með ferðina og félagskapinn enda fengum við okkur einkennisbúning eins og sést á meðfylgjandi mynd! Næsta stopp verður svo vonandi sem fyrst í NYC, er það ekki girls;)

FUUUUUULLLT af myndum úr ferðinni hér fyrir neðan!

það var mikið hlegið, brosað, spjallað, skrafað og drukkið (ekki má gleyma því;)







































dælig pige, dælig kage