1.12.07

Tina Turner...

í kariokie-blasti kl 06:27

ekki góð hugmynd

Það var semsagt partý hjá nágrannanum og þrátt fyrir tvær hæðir á milli okkar var eins og Tina sjálf stæði í svefnherberginu mínu.

Ætli hún sé að hefna sín?

Annars er ég að fara í jólamat Lindarborgar í kvöld, allir sem ætla að vera í bænum í kvöld, vinsamlegast hafið samband. Annars held ég að ég verði komin heim um 21...
og það er ekki gaman

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er á svona stundum sem ég þakka almættinu fyrir að búa í sveit og ekki nágranni í margra km. fjarlægð.