22.5.08

WE ARE THE BEST FOOTBALLTEAM IN THE WORLD




og svo erum við komin áfram í eurovision!!!!!!
Pallapartý!!!!!




Taumlaus gleði!!!!!

16.5.08

vá! Þetta er eitt það steiktasta



sem ég hef séð, maður á eiginlega ekki til orð.

Best að halda sig frá krakkinu!

12.5.08

er að elska þetta lag



Var á árshátíð Ísafoldarprenntsmiðju, svaka stuð. Snillingurinn Lísa gerði þetta við mig





Verst er að nú er ekki séns að ég máli mig aftur sjálf! Lísa ég verð fastagestur hjá þér!! Hahaha


og ekki má gleyma þessum elskum! WE ARE THE CHAMPIONS MY FRIENDS.... og svo er það meistaradeildin þann 21, rassskella þetta ógeð...

1.5.08

jæja...


þá er ég búin að ná mér úr lægðinni eftir að ferðirnar mínar 2 kláruðust og ekkert meir planað. Grát...

Bíð bara spennt eftir að einhver æstur vinur/vinir vilji fara að skipuleggja ferð, kannski yfir High Tea á Vox, hver veit?? Annars er nóg að gerast hjá mér næstu 3 helgar, gaman gaman. Opið hús á Lindarborg núna á laugardaginn og allir að sjálfsögðu velkomnir að skoða vinnustaðinn minn og mig með. Svo er High Tea hittingur þann 10 maí og í beinu framhaldi árshátíð Ísafoldarprentsmiðju, Lísa og Dísa vonandi tilbúnar að skvera dömuna??!!
Og svo er loksins komið að 30 afmæli á Hagamelnum, ekki leiðinlegt að fá svona nokkrar helgar i röð til að kíkja í gleði í sínu fína pússi enda verð ég að fara að nota e-ð að þessum blessuðu kjólum mínum sem ég er búin að vera að sanka að mér!!

En í annað, var að lesa Dýragarðsbörnin aftur, það vaknaði áhugi hjá mér að lesa hana efir að hafa verið í Berlín. Og við vorum semsagt bara in the middle, þar sem allt gerist í bókinni, verslunargatan fína sem hótelið okkar var við, var t.d. svokallaðia barnastrik þar sem heróínsjúkar stelpur á aldrinum 12-15 ára seldu sig fyrir skammtinum og skammt frá var svo Zoo lestarstöðin þar sem Cristiane F nældi sér í kúnna og sparautaði sig svo á klósettunum. Bók sem virkilega situr í manni og er ég búin að vera að googla aðeins. Er að velta því fyrir mér hvort maður eigi að eltast við að sjá myndina, einhver sem hefur séð hana??

Jæja úr eymdinni í gleðina, þið megið endilega koma með tillögu að bók fyrir mig að lesa, er í lestrarstuði!