25.1.06

'Eg les ekki oft ruslpóst...

en þessi er nokkuð góður....(fyrir okkur gamla fólkið;o)

Sjúkket maður, ég er orðin 30 ára. Fólk eldra en 30 ætti að vera dáið! (eða vorum við bara heppin?)

Ég var að spjalla um daginn við vin minn um þá "gömlu góðu daga" og við komumst að því að fólk sem er eldra en 30 ára ætti í raun að vera dáið. Já, samkvæmt löggjöfum og skriffinnum nútímans ættu þau okkar sem voru börn á 5., 6., 7. og fyrrihluta 8. áratuga síðustu aldar ekki að hafa lifað af.

HVERS VEGNA VAR ÞESSI NIÐURSTAÐA OKKAR SVONA?

- Jú, barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu.

- Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum og þegar við hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm.

- Sem börn sátum við í bílum án öryggisbeltis >og/eða púða. Að fá far á vörubílspalli eða "teika" var sérlega gaman.

- Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar voru of feit, því við vorum alltaf úti að leika, við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni án þess að nokkur létist.

-Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum á honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið.

-Við forum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og komum aftur heim í kvöldmat Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir daginn. -Engir farsímar. Ha, engir farsímar? Óhugsandi! Sumir áttu litlar talstöðvar sem var flott að eiga!

-Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X-box, enga tölvuleiki, ekki fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gervihnattasjónvarp, ekki heimabíó, farsíma, heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu. -Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá.

-Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að kenna neinum um nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi?

-Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það.

-Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli og átum Maðka og reyktum njóla. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar og margir gáfust upp á fyrsta njólanum!

-Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og létum eins og heima hjá okkur.

-Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu, eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa. Svo þegar aldurinn sagði til sín fórum við í kossaleik og eignuðumst kærustu/kærasta.

-Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur - Við stjórnuðum okkur sjálf.
-Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk. Hræðilegt.... En þeir lifðu af.

-Engin vissi hvað Rídalín var og engin bruddi pillur sem barn.

-Það var farið í þrjúbíó á sunnudögum með popp með sér og kakó á Lybbís-flösku, og Andrés Önd var á dönsku, sem hefur hjálpað mörgum námsmanninum í að fóta sig í norðurlandamálunum seinna meir.

-Við fórum í sunnudagsskóla eða sóttum KFUM og K, sungum og vorum í Skátunum og lærðum hnúta og kurteisi.!

-Ef það sprakk á hjólinu lagfærðum við það í sameiningu og alveg sjálf.

-Morgunkornið okkar var m.a. TRIX morgunkorn, og við lifðum af litarefnið í því...

OG AFLEIÐINGIN ER ÞESSI! Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda. Við áttum frelsi, sigra ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt saman. Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og reglur um líf okkar sem þeir segja að sé okkur sjálfum fyrir bestu?. Þessi kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, er lunkið að leysa vandamál og bestu fjárfestar nokkru sinni. Við áttum bara gott líf er það ekki?

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Heyr heyr (þó svo ég sé enn 20ogeitthvað...)

Nafnlaus sagði...

Ég man nú vel eftir þessu flestu og þróunin er SORGLEG en svona er þetta samt ennþá í litlu krummaskuðunum útá landi...kannski það sé það sem heldur í fólkið á stöðum þar sem hvorki er búð né atvinna :)

Nafnlaus sagði...

Ohh..já those were the days my friend...tví tví og eina króna og teygjó....þetta voru æðislegir tímar!!

tvíburamamman um lífið og tilveruna sagði...

hehe, man nú ekki eftir tví tví , en snú snú, teygjó og eina króna...jebb bara gaman og fallinn spýta, stórfiskaleikur.......